Hér erum við...um okkur... frá okkur... til þín
03.07.2006 20:25:12 / kollaida

Nýtt blogg

Hæhæ...

Ég og Disa skvísa erum komnar með nýtt tyrknest blogg :) Endilega kíkiði og ekki hika við að skrifa í gestó og commenta :)

www.stelpurnar-heim.bloggar.is

later...


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 14:04:09 / kollaida

HÆTT Í BILI...

Ég hef ákveðið að leggja pennann á hilluna í einhvern tíma....
-KÍH-

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 10:19:23 / kollaida

Míns er lasin :(

Ég er alveg brjáluð...mig langar svo ekki til að vera lasin!! Þetta er alveg tíbíst, árshátið á laugardaginn og ég lasin, með RISA bólu á nefinu og með RISA STÓRA frunsu ARRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGG:klikk::klikk::klikk::klikk::klikk: En þar sem að ég er bara uppí rúmi að láta mér leiðast gerði ég svona eitthvað skemmtilegt.... endilega kíkiði á þetta!
http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=060217051610-338001&     


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 19:38:32 / kollaida

Smá update...

Hæhæ.. Vá hvað ég er ekki að standa mig í þessu blogg dæmi!! Enda er búið að vera kolkreisíklikk mikið að gera hjá mér þessa dagana... Eg er alveg að sultast í þessum blessaða skóla. Mér er svosem búið að ganga ágætlega í öllum prófunum sem eru btw 9 talsins!! En ég er að skíta á mig með þessa blessuðu heimildaritgerð sem ég á að skila á morgun.. en það er eins gott að þetta sé allavegana eitthvað rétt hjá mér af því að ég er búin að vera að vinna í þessu alla helgina og meira en það! En ég var að klára að prenta út lokaútgáfuna og svoleiðis verður þetta bara!! Og hana nú! En eins og ég sagði þá átti ég mér ekkert líf um helgina annað en að lesa og skrifa um riddara. En ég kíkti samt aðeins í stelpugame hjá Erlu minni á föstudaginn, kíktum svo á stelpukvöldið á yello en það voru ekkert svaka margar þar en míns var bara komin heim um 12 leytið, ógeðslega dugleg eitthvað;), hefði samt alveg verið til í að djamma feitt með stelpunum mínum :cry: Svo kíkti Brynjar í bæinn með strákunum á laugardagskvöldið og ég fór og hitti múttuna mína hjá Gullu, sátum þar og föndruðum kort... ótrúlega duglegar þessar skvísur :D Svo var það bara rise and shine snemma á sunnudaginn og læra :frown: En svona er þetta bara... En svo komu mamma og Bjössi minn í mat til okkar.. ohh það er svo gott að hafa þau hjá sér:haha:
En næstu helgi verður sko tekin með trompi í staðin.. það er árshátið hjá fríhöfninni og það er sko aldrei leiðinlegt í kringum það lið;) Míns stalst meira að segja í bæinn áðan og keypti sér topp og kjól ;) En spurning um að fara bara og hafa það kósý í kvöld, æiii nei kannski gera stærðfræði og íslenskuverkefnið fyrst... ohhh sem þýðir það að ekkert kósý kvöld í kvöld...demmm!!!!
En ég er ekkert að fara að gefast upp sko!! hehehehe...
Later
-KÍH-
 
*smá gáta....
hvað þýddi KÍH í gamla daga??? bwahahahaha...

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 09:35:44 / kollaida

Smá um mig...

Fjögur störf sem ég hef gegnt:
* Garðyrkjukona með meiru...
* Hárgreiðslukona...
* Hárgreiðslukerling í Danmörku (belive me það er allt annað en hárgreiðslukona á Íslandi, úfffff!!)
*Þjónustufulltrúi (aka lyftuvörður ;) geri aðrir betur!!)

Fjórar kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
* Grease (vá fær maður aldrei nóg??;))
* Clueless (bwahaha er ekki búin að sjá hana lengi en VÁ... Erla má ég fá hana lánaða??)
* Lion King (ég dýrka þessa mynd ;))
* Dumb and Dumber, hver getur ekki horft á hana aftur og aftur!!

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
* Arvikavej 11. lej 611 (Skive, Denmark.... loved it, 40 fermetrar og kósý :haha:)
* Sólvallagata 28 (fyrsta íbúðin mín... miss her:$)
* Heiðarholt 6 (btw ég ætla ALDREI aftur að búa í blokk :evil: )
* Hlíðó (bara sælan)

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég dýrka að horfa á:
* Neighboures, pottþétt vitlaust skrifað en everybody needs good neighboures....
* Desperate Houswife (Vóóó bara spennó og drama.. víííií)
* Friends!!!!!!!! (Ég og friends erum like this!!!! Þetta er framhjáhaldið mitt og hefur verið það í nokkur ár!! Sorrý Brilli)
* LOST!!!!!!!!00 (er gjörsamlega húkkt á þessa þætti!! Á einhver 9unda þátt í 2 seríu?? Please let me know if you do)

Fjórar vefsíður sem ég heimsæki daglega þessa dagana:
* mbl.is
* blog.central.is/kollaida  
* bebbaoghjolli.blogspot.com
* visir.is

Fjórir af uppáhaldsréttum/mat (breytist samt frá degi til dags ;))
* Fajitas
* Hryggur með öllu..ummmmm
* Grilluð steik með piparsósu a la Brynjar :)
* Kjúlli með Jensens sósu (ok já ég er sósukerling ;))

Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á núna: (gæti alveg talið upp milljón staði)
* Ástralía (þyrfti alveg allavegana ár þar!)
* Tæland (ohhh bara sælan)
* Afríka (framandi og spennandi land)
* Að kúra með Brilla mínum (hihi :haha:)

Endilega copy og paste yfir á ykkar síðu... gaman að þessu :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 11:40:07 / kollaida

Enn ein helgin búin...

Það er heldur betur þeytingurinn á manni þessa dagana.. Ég held að ég sé í allt of mörgum verkefnum!! Skólinn og 2 vinnur og svo standa í skilum við þetta félagslega :)... ég hef varla tíma til að anda:S
En á fimmtudaginn fórum við á styktartónleikana fyrir Bryndísi Evu og vá hvað maður var snortin yfir því hvað fólk stendur saman þegar eitthvað bjátar á.. frábært að sjá Ránna troðfulla af fólki og frábærum listamönnum! Frábært hjá þeim sem stóðu fyrir þessu og vonandi hafa allir góðu straumarnir farið beinustu leið til prinsessunar ;) Svo var afmælis-innflutningspartý hjá Stjána og Írisi á laugardaginn, hörku stemmari en mín var bara létt og fór snemma, samviskan alveg að drepa mann en ég varð að læra á sunnudaginn! Vá mér líður eins og það sé engin í skóla nema ég!! Þetta er ekkert smá erfitt að læra aftur að læra og skipuleggja sig vel þannig að þetta stemmi allt saman.. en þetta er allt að koma :haha: tekur bara smá tíma að koma sér inní þetta. En svo kíktum við á Keflavík-Njarðvík í gærkvöldi, hörku spennandi leikur en vá hvað dómararnir voru að passa sig að missa ekki tökin á leiknum.. það var bara villa, villa og villa!! En allt er gott sem endar vel, Keflavík tók þetta með 6 stigum að mig minnir.. go kef!! Er þaggi Erla? :haha:
En þá er önnur skóla-vinnuvika byrjuð og best að fara að hisja uppum sig buxurnar og fara í skólann, vinnuna og koma svo heim að læra og fara svo að sofa...
En já ef þið ætlið að bjóða mér á djamm næstu helgi þá segi ég bara strax NEI TAKK þannig ekkert vera að spurja ;) ég er svo léleg í að neita og ég VERÐ að skrifa ritgerð um helgina.. vá hvað ég er skipulögð strax búin að ákveða næstu helgi.. víííííííííí...
Later folks...

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 11:55:13 / kollaida

Styrktartónleikar í kvöld á Ránni.. ALLIR AÐ MÆTA!!

Góðan daginn gott fólk.
Ég vil biðja alla þá sem sjá sér fært um að mæta á styrktartónleikana á Ránni í kvöld sem eru til styrktar Bryndísi Evu sjá http://www.vf.is/frett/default.aspx?path=/resources/Controls/57.ascx&C=ConnectionString&Q=Front2&Groups=0&ID=25038

Þessi prinsessa og foreldrar hennar eiga allt það besta skilið.

Vertu nú yfir og allt um kring 
Með eilífri blessun þinni 
Sitji Guðs englar saman í hring 
Sænginni yfir minni. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 10:29:03 / kollaida

Þetta er fyndið GIRLS....

1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK? 
(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)

2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?
(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)

3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?
(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)

4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?
(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)

Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o)

5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?
annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)

6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?
(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)

7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?
(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)


Einn góður í lokin...


8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?
(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 10:27:58 / kollaida

Nokkrar staðreyndir...

1) Eftir eins tíma sundferð hefur þú komist í snertingu við hálfan lítra af þvagi. Ojoj þarf maður að hætta að fara sund eða????

2) Á meðaldegi kemst þú í óbeina snertingu við 15 tippi, t.d. við að taka í hurðarhúna. Ég meina ég fíla typpi alveg, en hallóó, vil engin 15 typpi á dag0

3) Árleg neysla meðalmanneskju á skyndibitamat inniheldur 12 kynfærahár. Held ég sé orðin södd, hef ekki lyst á meiru.... 

4) Þú eyðir sex mánuðum lífs þíns á klósettinu. Ég og klósettið erum vinir, þannig að þetta er í góðu 0

5) Ef þú nagar neglurnar innbyrðirðu meira magn sýkla en ef þú sleiktir hreina klósettskál. namminamm, er þá bara hætt að sleikja klósettskálina 0

6) Flestir karlmenn þvo alls ekkert á sér hendurnar eftir að hafa verið á klósettinu. Veltu því fyrir þér næst þegar þú ert á barnum og færð þér hnetur úr skálinni á barborðinu. úff sem betur fer borða ég ekki hnetur hahahahah

7) Í meðalbrúðkaupi hefur þú hundrað möguleika á að smitast af frunsu frá einum gestanna. Ég og frunsur eigum samleið, þannig að ég er hætt að fara í brúðkaup....eða nei ég fýla brúðkaup og mér er alveg sama þó ég fái eitt stykki frunsu 0

0 Þú andar daglega að þér hálfum lítra af endaþarmsgasi frá öðrum.  Ok endaþarmsgas, lovely0

9) Tannlæknar telja að tannburstar verði að vera í a.m.k. tveggja metra fjarlægð frá klósettskálinni til að sýklar í loftinu frá skálinni festist ekki á burstunum. OMG er þetta satt???? minn er í 3 metra fjarlægð, vona ég allavega, þannig að ég er vonandi save....

10) Á einu ári heilsar þú með handabandi 11 konum sem hafa nýlega fróað sér og gleymt að þvo sér um hendurnar. Jemin... er þetta satt stelpur!

11) Á einu ári heilsar þú með handabandi 6 körlum sem hafa nýlega fróað sér og gleymt að þvo sér um hendurnar. Strákar er þetta satt??? ég sleiki alltaf á mér hendurnar eftir að hafa heilsað einhverjum gaurum, er ss hætt því núna hahahahahaha nei oj djók00

Þetta er nú nokkuð magnað 00


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 14:37:50 / kollaida

Köben baby

Sælar... Við komumst semsagt til Köben og HALLO hvað það er ógeðslega kalt hérna!!! Við erum að tala um -5 gráður og svo rakan sem er hérna sem gjörsamlega étur sig innað beinum en þá er bara að klæða sig vel ;) Við kíktum í Fields í gær og strákarnir fóru hamförum í verslunum þá aðalega HM og míns tók því bara rólega og keypti EKKI NEITT!! hehehe... Þetta verður skoðað betur á morgun ;) En svo var það partý-ið í gær, veit ekki hvort ég eigi eitthvað að vera að niðurlægja mig eitthvað meira eða hvort að það sé þá hægt!! En núna eruð þið væntanlega orðin forvitin þannig að hérna kemur það.... Við komum þarna og þetta var nottla fólkið frá seinni önninni og ég var nottla ekkert mikið í skólanum þannig að það voru allir að knúsa Binsa og Mr.Big og ég eitthvað þarna "Hej" hehehe... mundu ekki margir eftir mér en samt einhverjir ;) En svo var bara skellt í sig nokkrum meðan við horfðum á myndband frá Roskilde þar sem að 22ja manna hópur úr skólanum fór og bjó til bar. Geggjað gaman að sjá þetta, vá hvað maður hefði verið til í að taka þátt í þessu!! En svo komu hello myndbönd frá nokkrum sem komust ekki og þar á meðal var Steffen, en hann var líka á fyrri önninni og er úber hress dúddi en því miður komst hann ekki.. En allavegana svo fór maður að blanda geði við liðið og það var geggjað gaman svo röli mín eitthvað fram og var síðan að fara til baka inní stofuna sem BTW var troðin af fólki og haldiði ekki að ég flækist í einhverjum snúrudjöflum og KA-BÚMMMMMMMMMMM lá killiflöt á gólfinu og þá meina ég KILLIFLÖT!!! Bawhahahahahahahahahahahahahahaha.... Ég stóð upp í hláturskrampa og allir að spurja hvort að það sé allt í lagi og ég bara ja, ja, ja og hló og hló en hell no það var ekki í lagi með mig!! Ég var að drepast í hnjánum og er að drepast í hnjánum ennþá, og það fyrsta sem ég spurði Brynjar að var hvort að það væru göt á sokkabuxunum en hjálpi mér hvað þetta var skondið og það er óspart búið að skjóta á mig en allavegana eftir þetta þá fór ég bara inní eldhús að kíkja á liðið þar, nei nei liggur ekki Mr.Big yfir vaskinum alveg að drepast..bwahahahahahahahaha það endaði með göngu með Binsa og svo uppí rúm þar sem voru breiddir jakkar yfir hann svo að hann fengi nú frið.. hann sagðist ætla að fá svona 5 mín í að jafna sig sem varð svo að 10 mín sem urðu svo að klukkutíma!! hehehe... þetta var bara fyndið kvöld!! En svo ákváðum við að fara og fá okkur eitthvað að eta aður en við færum heim og það var farið á pizzastað, Mc donalds HALLO við vorum svöng!! hehehe... en á leiðinni heim var ég gjörsamlega orðin af klaka og sá einn leigara þarna og hljóp að honum og stoppaði hann en HALLO þetta var limmi!!! Bawhahahhahahahahaha...... En heyriði við erum farin að borða og í bíó!!! Hilsen Kolla misheppnaða frá Köben

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 21:16:58 / kollaida

Hjálpi mér allir heilagir!!!!!

Er ekki verið að djóka með það að flugstöðin í Köben er bara LOKUÐ!!! og er búin að vera lokuð í allan dag... VEI!!! Þið getið rétt ýmindað ykkur hvað ég er rosalega ánægð núna:klikk: En það er búið að vera svo mikill snjór og rok og eitthvað sem heitir snjórigning eða eitthvað og er víst ekki séns að fjúga þegar það er þannig, þannig að mar verður bara að bíða og vona að veðrið lagist á næstu klukkutímunum 8| Allir að krossa fingur fyrir okkur....
En allavegana góða helgi allir saman ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 16:45:17 / kollaida

...

Sælar....
Verður mar ekki að vera smá virkur hérna?? Um helgina var auðvitað farið á djammið en því djammi hefði ég alveg verið til í að SLEPPA!!!!!!:klikk::klikk: Nenni ekki einu sinni að skrifa um það!!! Svo slæmt var það! En það verður bara bætt upp á laugardaginn með hörkutjútti í Köben :haha: Já við erum að fara til Köben á laugardaginn til þess að hitta mann og annan... Ætlum að vera hjá Mr. Big þar að segja ef að hann verður búinn að taka til í herberginu sínu ;) og fara og hitta gamla liðið frá Krabbesholm í partýi á laugardagskvöldið.. mar verður heldur betur að rifja upp gamla takta þar ;) Svo er heljarinar langur listi af fólki sem vill hitta mann ;) Verst er það bara að við komumst ekki yfir að fara á alla staðina :( væri sko alveg til í að kíkja á Horsens gengið og Skive búana.. en það verður bara í næstu ferð sem gæti alveg verið í næsta mánuði ef að fólk tekur við sér og leggur inná Danmerkur ferðareikninginn okkar sem hann stórvinur okkar Mr. Big stofnaði :haha: En mig hlakkar ekkert smá til að koma út og bara það að heyra dönskuna, vííííí.....
En spurning um að fara að klára að læra og taka úr vél og sækja kallinn og vaska upp og elda og og og og og og og og og og og og..................... vá brjálað að gera hjá mér...
túrilú

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 19:25:33 / kollaida

Stelpur vissuð þið að..
 
 kossar eru hollir!Lips
bananar eru góðir við túrverkjum!Banana
Það er gott að gráta!Crying Into Tissue
kjúklingasúpa lætur ykkur í alvöru líða betur!Soup
94% af strákum myndu elska það að fá blóm frá ykkur!Roses
Lygar eru í alvöru óhollar!Liar
 
það er nóg að láta maskara efst á augnhárin!
 
það er í alvöru satt að strákar móðgi ykkur þegar þeir eru skotnir í ykkurGreat
það er alls ekki hægt að láta á sig maskara með munninn lokaðan!
89% stráka vilja að ÞÚ takir fyrsta skrefiðOff My Feet
Súkkulaði lætur ykkur líða betur!Chocolate=Wakka Wakka
Strákum finnst sætt þegar þið mismælið ykkur!Friends
 
Góður felari felur alveg bólur þó þú haldir annað!Blushy
Strákar eru ekki tára ykkar virði!Blowing Nose
 

» 16 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 15:35:38 / kollaida

Krókn...knókn...krókn...:evil: ég er að krókna úr kulda!!! Tærnar eru blautar og frosnar, nefið rautt, puttarnir að detta af og ég hef ekki undan að þurka horið! Er ekki komið nóg af þessum snjó og KULDA!! Mig er strax farið að hlakka til sumarsins.. smá hiti í kroppinn, lykt af nýslegnu grasi, grilllykt og sundferðirnar!! Vá ég er bara komin í draumaheim hérna.. En það er eins gott fyrir Erlu og Jónas að koma heim með smá hita með sér á morgun!!:D
En yfir í annað.. við ætlum að skella okkur til Köben þarnæstu helgi. Það er X-Krabbesholm partý á laugardeginum og auðvitað ætlum við að heiðra þau með nærveru okkar. Það verður æði að kíkja á liðið og taka eins og eitt gott djamm í leiðinni. Og það er spurning hvernig manni líður að koma aftur í Danaveldið, ætli maður komi nokkuð aftur heim, hihihi...
En lærdómurinn bíður...
See ya

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 23:50:29 / kollaida

Hæhæ og hó... Helgin bara búin! Vá hvað dagarnir eru fljótir að líða.. það verður bara komið 2007 áður en við vitum af.. En ég ætlaði alltaf að reyna aftur að skrifa nokkrar línur um árið 2005 sem var án efa það allra besta árið hingað til.. eða allavegana meiri hlutinn af því!! Toppurinn var nottla reisan sem ég fór í með ástinni minni. Þetta var nottla bara once in a lifetime dæmi, nema maður skelli sér aftur þegar maður er orðin grár og hrukkóttur.. það er aldrei að vita?? Ég hafði aldrei leyft mér að dreyma það að fara í svona reisu en svo bara gerðist það einn góðan veðurdag þegar að ástin mín komst ekki inní skólann og ég í einhverju focki í vinnunni í Danaveldi að við ákváðum bara að skella okkur!! Þessari ákvörðun á ég aldrei eftir að sjá eftir, það er nokkuð ljóst! Og fá að upplifa þetta allt með manninum sem ég elska útaf lífinu var líka alveg toppurinn á tilverunni :haha:
En við bjuggum nottla í Danaveldi fyrri hluta ársins og enduðum svo á því að flytja hingað til Kef-city í ágúst... komin heim í rútínu, verð nú að viðurkenna að það er ekkert búið að vera neitt allt of auðvelt :$ Maður orðin vanur því að gera bara það sem að maður vill, þegar að maður vill en svo var það bara rútínan sofa, vinna og borða...  En nóg um árið 2005! 2006 er komið og ég finn það alveg á mér að þetta á eftir að vera magnað ár :haha:

En yfir í raunveruleikann... við fórum á tónleikana í höllinni á laugardagskvöldið, það var geggjað!! Ég fékk tvisvar sinnum þvílíka gæsahúð.. fyrst þegar að Sigurós tók eina lagið sitt sem btw var geggjað svekkjandi... gátu þeir ekki tekið allavegana tvö fyrst að þeir voru nú mættir á sviðið en svo var það þegar að Damien Rice tók æi þarna ohhhhh ég man ekki hvað lagið heitir, dises er ekki í lagi með mig:evil: Æi allavegana geggjað gaman.. fórum samt áður en þetta kláraðist af því að Brynjar var að drepast í bakinu sínu. Þannig að við fórum bara heim og horðum á video, bara kósý kvöld ;)
En maður ætti kannski að fara að leggja sig.. skóli í fyrramálið ;)
Later....

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti